Það er nú orðið uppselt á öll Barca Academy Football Camps Iceland 2026 námskeiðin sem fara fram í sumar í samstarfi við Barça Academy. Áhugi á námskeiðinu hefur verið gríðarlegur og hafa yfir 530 leikmenn þegar skráð sig til þátttöku.

Við hjá Knattspyrnuakademíu Íslands viljum færa öllum foreldrum og leikmönnum okkar bestu þakkir fyrir frábærar viðtökur. Það er einstakt að sjá þann mikla áhuga sem ríkir fyrir Barca Academy á Íslandi og hlökkum við mikið til að taka á móti öllum þátttakendum í sumar.

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við nú opnað biðlista fyrir þá leikmenn sem vilja enn eiga möguleika á að komast að ef pláss losnar á námskeiðunum.

Barca Academy hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem eitt vinsælasta og metnaðarfyllsta knattspyrnunámskeið landsins þar sem leikmenn fá tækifæri til að æfa samkvæmt hinni frægu Barca Methodology undir leiðsögn þjálfara frá FC Barcelona.

Skráning á biðlista

Hægt er að skrá leikmenn á biðlista hér

Við hlökkum til að sjá ykkur öll í sumar! 🔵🔴

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter