IMG_4467Í nóvember mánuði stendur Knattspyrnuakademía Íslands fyrir knattspyrnuskóla í Kórnum, stærstu og flottustu knatthöll landsins. Um er að ræða þriggja vikna námskeið sem hefst 11. nóvember. Hafa námskeið Knattspyrnuakademíunnar verið gífurlega vinsæl í gegnum tíðina og færri komist að en viljað.

Þjálfun:
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessir þættir skipta miklu máli fyrir þennan aldurshóp að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar, skallar.

Þjálfarar:
Hans Sævarsson, Halldór Björnsson, Ragnar Gíslason, Halldór Ragnar Emilsson, Andri Fannar Stefánsson, Ómar Ingi Guðmundsson, Kristín Ýr Bjarnadóttir o.fl.

Er námskeiðið bæði fyrir stráka og stelpur sem fædd eru 1999 – 2004. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega knattspyrnuiðkendur sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Markmannsskóli Knattspyrnuakademíu Íslands
Markmannsskóli akademíunnar hefst einnig 11. nóvember, þar sem landsliðs markmannsþjálfarinn Guðmundur Hreiðarsson sér um þjálfunina. Þar verða æfð helstu tækniatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga. Upplagt tækifæri fyrir efnilega markmenn sem vilja bæta sig og ná langt.

Námskeiðin hefjast mánudaginn 11. nóvember og  standa til 28. nóvember. Fara æfingarnar fram á mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

Þátttökugjald á námskeiðin er 15.500 kr. og er innifalið í því morgunhressing.

Smellið hér til að skrá á námskeiðið

 

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter