Knattspyrnuakademía Íslands kynnir með stolti Barca Academy námskeið 2026 í samstarfi við FC Barcelona. Námskeiðin hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og fyllst hratt, og því er foreldrum eindregið bent á að tryggja pláss tímanlega.

Barca Academy starfar eftir hinni frægu Barca Methodology og sendir eingöngu þjálfara sem starfa í FC Barcelona akademíunni sjálfri. Þetta er einstakt tækifæri fyrir unga leikmenn á Íslandi til að æfa eftir sömu aðferðarfræði og notuð er í La Masia – einni virtustu knattspyrnuakademíu heims.

Um námskeiðin 2026

Leikmenn fá meðal annars að:

  • Æfa eftir Barca Methodology með áherslu á tæknilega færni, leikskilning og skapandi spilamennsku
  • Kynnast gildum FC Barcelona: virðingu, vinnusemi, metnaði og liðsheild
  • Þjálfast af reyndum Barca-þjálfurum sem koma sérstaklega til landsins
  • Taka þátt í fjölbreyttum og faglega uppbyggðum æfingum
  • Fá Nike æfingasett, fótbolta og viðurkenningarskjal
  • Njóta öryggis og gæða – sjúkraþjálfari er á öllum æfingum

Aldurshópar og æfingatímar

Námskeiðin eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 8–14 ára, skipulögð eftir fæðingarárum:

  • 2014-2015 (5. flokkur): kl. 09:00–11:00 (mætt kl. 08:45)
  • 2012–2013 (4. flokkur): kl. 11:30–13:30 (mætt kl. 11:15)
  • 2018 (eldra á í 7. flokk): kl. 11:30 -13:30 (mætt kl. 11:15)
  • 2016-2017 (6. flokkur): kl. 14:30–16:30 (mætt kl. 14:15)

Dagsetningar og staðsetning

  • Æfingadagar: 15.-19. Júní
  • Búningaafhending: 14. júní
  • Staðsetning: Kópavogsvöllur / æfingasvæði Breiðabliks

Verð og afslættir

  • Verð: 52.500kr. (verðið er 44.900 hjá 7. flokki, þar sem námskeiðið er 4 dagar hjá þeim flokki)
  • Hægt er að skipta greiðslum á fjóra mánuði
  • 10% systkinaafsláttur

Skráning

Skráning fer fram í gegnum Abler:

👉 https://www.abler.io/shop/barcaacademyiceland/1

Vegna mikillar eftirspurnar síðustu ára er mælt með að skrá sem fyrst. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður í hverjum hópi til að tryggja gæði og persónulega leiðsögn.

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter