Núna er loksins að koma að FC Barcelona fótboltaskólanum 2020. Eins og við höfum áður greint frá, þá þurfum við að breyta fyrirkomulaginu sökum Covid 19 og þ.a.l. verður uppsetning á námskeiðinu aðeins frábrugðin fyrri ára. Nýtt skipulag er unnið í góðu samstarfi við stjórnvöld.
Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn lesi vel yfir þessa færslu og fari eftir neðan greindum fyrirmælum svo námskeiðið gangi hnökralaust og krakkarnir fái að njóta sín.
Æfingavikan í FC Barcelona fótboltaskólanum
Allir þjálfarar verða hitamældir fyrir æfingar og munu vera með grímur á æfingum.
Foreldrar og mæting á æfingar
- Sökum Covid 19 er foreldrum óheimilt að horfa á æfingar á námskeiðinu.
- Foreldrar verða hvattir til að skila börnum af sér á bílastæði og koma ekki með þeim inn á æfingasvæðið nema brýna nauðsyn beri til.
Foreldrar leikmanna í eftirfarandi hópum skilja sína leikmenn eftir á bílastæðinu við Kópavogsvöll: Semedo, Suarez, Umtiti, Ter Stegen, Pique, Rakitic og S. Roberto
Foreldrar leikmanna í eftirfarandi hópum skilja sína leikmenn eftir á bílastæðinu bakvið Fífuna: Alba, Busquets, F.D. Jong, Dembélé, Messi, Griezmann, Lenglet, A. Fati.
Æfingar
Ekki verður hægt að bjóða uppá búningsklefa vegna Covid 19 og mæta leikmenn beint út á þann völl sem þeirra hópur mun æfa á. Hópar og æfingavellir bera nöfn leikmanna FC Barcelona og verða æfingavellir merktir leikmönnum, t.d. mæta leikmenn í Messi hóp á þann völl sem hefur verið merktur svona:
Starfsmenn og þjálfarar FCB munu aðstoða leikmenn að finna sinn æfingavöll.
Æfingatímar og leikmannahópar(smellið á linkin hér að neðan til að skoða þinn æfingahóp)
Leikmenn sem æfa kl. 9:00-11:00 (mæting kl. 8:45 á sinn völl)
Leikmenn sem æfa kl. 11:30-13:30 (mæting kl. 11:45 á sinn völl)
Leikmenn sem æfa kl. 14:30-15:30 (mæting kl. 14:15 á sinn völl)
Uppsetning á æfingavöllum
Mikilvægt er að leikmenn verði mættir á sinn völl 15 mínútum áður en æfing hefst, með vatnsbrúsa, boltann, í æfingasettinu og með vettlinga eða hanska.
Ef þörf er á frekari upplýsingum, sendið okkur þá endilega póst á kai@knattspyrnuakademian.is