Í ljósi aðstæðna hefur verið tekin ákvörðun um að fresta Barcelona æfingabúðunum sem áttu að fara fram á Íslandi í júní. Þetta reyndist nauðsynlegt vegna m.a. ferðatakmarkana sem og ástandsins á Spáni, en þaðan koma þjálfarar námskeiðsins. En það gleður okkur að tilkynna að hægt er að færa æfingabúðirnar fram í ágúst og hlökkum við mikið til að sjá okkar flottu þátttakendur þá.
Æfingabúðirnar FC Barcelona 2020
Dagsetning: 10.-14. ágúst.
Staðsetning: Æfingasvæðið við Kópavogsvöll
Það er von okkar að ástandið verði orðið betra í ágúst og við getum haldið æfingabúðirnar en að sjálfsögðu er það háð því að samkomubanni verði enn aflétt og að flugsamgöngur hafi komist á að nýju.
Þeir sem hafa þegar skráð börn í æfingabúðirnar halda sæti sínu í ágúst.
Þeir sem óska eftir að afskrá þátttakanda vegna frestunar geta óskað eftir því og fengið endurgreiðslu en þá þarf beiðni um afskráningu að berast fyrir 20. maí.
Uppselt er í æfingarbúðirnar og langir biðlistar eru í hópa og munum við hafa samband við þá sem eru á biðlista ef forföll verða.
Hvernig fer afskráning fram:
Sendið tölvupóst á kai@knattspyrnuakademian.is með neðangreindum upplýsingum:
Nafn leikmanns
Nafn reikningseiganda
Kt. Reikningseiganda
Bankareikningur
Fótboltakveðja,
FC Barcelona og Knattspyrnuakademía Íslands