IMG_4855Vegna fjölda óska hefur Knattspyrnuakademía Íslands ákveðið að vera með annað morgunnámskeið í desember. Mikil aðsókn var í nám

 

skeiðið sem er núna í gangi, varð mjög fljótt uppselt á námskeiðið og myndaðist langur biðlisti.
Í kjölfarið var ákveðið að vera með annað námskeið í desember og eru áhugasamir beðnir að skrá sig sem fyrst þar sem búast má við að það fyllist fljótt á þetta námskeið.Þjálfun útileikmanna:
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessir þættir skipta miklu máli fyrir þennan aldurshóp að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúninga, skalla auk þess sem farið verður í leiki með bolta.Þjálfarar á námskeiðinu verða:
Margrét Lára Viðarsdóttir landsliðskona, Auðun Helgason fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður, Hans Sævarsson þjálfari Breiðabliks, Edda Garðarsdóttir landsliðskona, Halldór Emilsson þjálfari Stjörnunnar, Ásgeir Aron Ásgeirsson leikmaður Fjölnis, Ómari Ingi Guðmundsson þjálfari HK, Aðalbjörn Hannesson þjálfari Breiðabliks o.fl.Er námskeiðið bæði fyrir stráka og stelpur sem fædd eru 1997 – 2003. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega knattspyrnuiðkendur sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.

Markmannsskóli Knattspyrnuakademíu Íslands
Einnig verður í boði sérstakur markmannsskóli, þar verða æfð helstu tækniatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga. Upplagt tækifæri fyrir efnilega markmenn sem vilja bæta sig og ná langt.

Markmannsþjálfarar:
Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari Íslenska landsliðsins og KR.
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Íslenska landsliðsins og Breiðabliks.

Námskeiðin hefjast mánudaginn 3. desember og standa til 14. desember. Fara æfingarnar fram í Kórnum á mánudags-, þriðjudags-, fimmtudags- og föstudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.

Þátttökugjald á námskeiðin er 13.900 kr. og er innifalið í því morgunhressing.

 

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter