Það er orðið uppselt á öll FC Barcelona fótboltanámskeiðin sem fara fram á Íslandi sumarið 2025. Mikill áhugi hefur verið fyrir námskeiðinu og þökkum við öllum þeim sem hafa tryggt sér þátttöku fyrir traustið.

Við hlökkum til að taka á móti öllum þeim krökkum sem skráðir eru á námskeiðin og eigum von á frábærum dögum þar sem fagmennska og gleði verða í fyrirrúmi undir leiðsögn þjálfara frá FC Barcelona.

Hægt er að skrá sig á biðlista ef forföll verða og þá getum við mögulega boðið nýjum þátttakendum að taka sæti. Við viljum minna á að fjöldi þátttakenda er takmarkaður til að tryggja há gæði námskeiðanna og persónulega nálgun þjálfara við hvern og einn iðkanda.

Hafðu samband

Endilega sendu okkur línu, við svörum eins fljótt og hægt er.

Not readable? Change text.

Sláðu inn leitarorð og ýttu á Enter