Skráning á morgunnámskeið Knattspyrnuakademíu Íslands gengur vel og gert er ráð fyrir að fullt verði á námskeiðið en skráningu lýkur föstudaginn 21. janúar. Mikil áhersla er lögð á gæða og einstaklingsmiðaða þjálfun á morgunnámskeiðum Knattspyrnuakademíunnar.
Um er að ræða þriggja vikna morgunnámskeið 24. janúar – 10. febrúar. Kennt verður bæði í Kórnum og Fífunni. Skiptingin verður þannig á þessu námskeiði að yngstu strákarnir, stelpurnar og markmennirnir verða í Fífunni á meðan eldri strákarnir verða í Kórnum.