Framundan er morgunnámskeið hjá Knattspyrnuakademíu Íslands í Fífunni í Kópavogi, um er að ræða opið námskeið fyrir leikmenn frá öllum félögum. Undnafarin ár hafa námskeið knattspyrnuakademíunnar verið gífurlega vinsæl og færri komist að en viljað.
16. – 27. nóvember – Námskeið fyrir stráka og stelpur fædd 2001 – 2005
Þjálfun útileikmanna:
Áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem helstu grunnþættir knattspyrnu verða þjálfaðir en þessir þættir skipta miklu máli að þjálfa, meðal atriða sem farið verður í eru spyrnur, móttökur, snúningar og skallar.
Þjálfarar:
Margrét Lára Viðarsdóttir, Hans Sævarsson, Pétur Pétursson, Davíð Ólafsson, Andri Fannar Stefánsson, Hlynur Eiríksson, Kristín Ýr Bjarnadóttir og Eiður Ben Eiríksson.
Þjálfun markmanna:
Áhersla verður lögð á helstu tækiatriði sem markmenn þurfa að hafa í huga.
Markmannsþjálfarar:
Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari Íslenska landsliðsins og Stefán Logi Magnússon markmaður KR.
Æfingadagar: Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga
Æfingatími: kl: 06.20 – 07.20
Aldur: 2001-2005
Verð: 17.900 kr. með morgunhressingu
Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að smella hér
Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir efnilega knattspyrnuiðkendur sem vilja bæta sinn leik og ná langt. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu.
Ert þú vinur Knattspyrnuakademíu Íslands á facebook?