Dagana 23. og 24. febrúar hefjast ný morgunfótboltanámskeið hjá Knattspyrnuakademíu Íslands í Kórnum, stærstu og flottustu knatthöll landsins. Hafa námskeið Knattspyrnuakademíunnar verið gífurlega vinsæl í gegnum tíðina og komust færri að en vildu á námskeiðin sem eru núna í gangi. Um er að ræða námskeið þar áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem leikmenn eru þjálfaðir eftir aldri og leikstöðum.
Námskeið fyrir 9-11 ára stráka sem eru útileikmenn – 23. feb til 13. mars
Aðaláhersla verður lögð á að þjálfa grunnþætti knattspyrnu sem skiptir miklu máli fyrir þennan aldurshóp að þjálfa auk þess sem farið verður í skemmtilega leiki með bolta. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu. Fara æfingarnar fram á mánudags-, miðvikudags- og föstudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.
Námskeið fyrir 12-14 ára stráka sem er útileikmenn – 23. feb til 13. mars
Á þessu námskeiði verður aðaláherslan lögð á spyrnutækni, snúninga, móttökur og snerpuþjálfuni. Verða æfingarnar á mánudags-, miðvikudag- og föstudagsmorgnum. Kl: 06.20-07.20
Þjálfarar á þessum námskeiðum verða: Freyr Alexandersson, Jón Páll Pálmason, Hans Sævarsson, Halldór Jón Sigurðsson, Halldór Emilsson og Jakob Leó Bjarnason
Námskeið fyrir 9-11 ára stelpur sem eru útileikmenn – 24. feb til 24. mars
Eins og hjá strákunum á þessum aldri verður aðaláhersla lögð á að þjálfa grunnþætti knattspyrnu sem skiptir miklu máli fyrir þennan aldurshóp að þjálfa auk þess sem farið verður í skemmtilega leiki með bolta. Verður hópnum skipt bæði eftir aldri og getu til að tryggja að allir fái sem mest út úr námskeiðinu. Fara æfingarnar fram á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07:20.
Námskeið fyrir 12-16 ára stelpur sem er útileikmenn – 24. feb til 24. mars
Líkt og hjá strákunum á þessu aldri verður aðaláherslan lögð á spyrnutækni, snúninga, móttökur og snerpuþjálfun. Verða æfingarnar á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum. Kl: 06.20-07.20
Þjálfarar á námskeiðunum hjá stelpunum verða: Lea Sif Valsdóttir og Páll Árnason.
Markmannsskóli fyrir 9 – 14 ára stráka og stelpur – 24. feb til 24. mars.
Í annað skipti býður Knattspyrnuakademían upp á sérstakan markmannsskóla þar sem Guðmundur Hreiðarsson mun hafa yfirumsjón auk þess sem markmenn úr Landsbankadeild koma í heimsókn. Verða æfingarnar á þriðjudögum og fimmtudagsmorgnum kl: 06.20 – 07.20.
Allir þátttakendur á þessum námskeiðum fá æfingadress KAÍ sem inniheldur treyju, stuttbuxur og fótboltasokka.
Þátttökugjald á öllum námskeiðin er 15.000 kr. með morgunhressingu.