Markmannsnámskeið Gunnleifs Gunnleifssonar og Knattspyrnu Akademíu Íslands verður haldið helgina 6-7 apríl í knattspyrnuhúsinu Kórnum. 4 kennslustundir verða þessa tvo daga. Laugardaginn 19.30-20.10 og 20.20-21.00 og sunnudaginn 9.00-9.40 og 9.50-10.30. Knattspyrnufólk úr Pepsi deildinni koma í heimssókn og allir krakkar fá 25% afslátt af Stanno markmannsvörum í Jóa útherja. Ástæðan fyrir þessu helgar námskeiði er sú að koma á móts við þá krakka sem eiga erfitt með að sækja morgun námskeiðin okkar og í miðri viku. Æft er við bestu mögulegu aðstæður og verður farið yfir helstu grunnþætti markvörslunar. Tilvalið að fínpússa markvörsluna fyrir sumarmótin og koma vel undirbúin. Mikil aðsókn hefur verið undanfarin ár og um að gera að skrá sig sem fyrst áður en námskeiðið fyllist. Námskeiðið kostar 8000 og skráning og upplýsingar eru á markmannsnamskeid@gmail.com eða í síma 8697007.