Knattspyrnuakademía Íslands hefur staðið fyrir morgunnámskeiðum fyrir iðkendur á aldrinum tíu til sextán ára frá árinu 2003. Hafa námskeiðin verið vel sótt og oftar en ekki hafa færri komist að en vildu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjálfun þar sem iðkendum er skipt niður í fámenna hópa eftir aldri og getustigi til að hámarka framfarir hvers og eins á námskeiðunum. Reyndir þjálfarar, atvinnumenn og fyrrum atvinnumenn þjálfa á námskeiðunum. Á námskeiðum hafa sést miklar framfarir hjá iðkendum.
Undanfarin ár hafa öll morgunnámskeið akademíuna fyllst.