Knattspyrnuakademía Íslands kynnir með stolti Barca Academy námskeið 2026 í samstarfi við FC Barcelona. Námskeiðin hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og fyllst hratt, og því er foreldrum eindregið bent á að tryggja pláss tímanlega.
Barca Academy starfar eftir hinni frægu Barca Methodology og sendir eingöngu þjálfara sem starfa í FC Barcelona akademíunni sjálfri. Þetta er einstakt tækifæri fyrir unga leikmenn á Íslandi til að æfa eftir sömu aðferðarfræði og notuð er í La Masia – einni virtustu knattspyrnuakademíu heims.
Um námskeiðin 2026
Leikmenn fá meðal annars að:
- Æfa eftir Barca Methodology með áherslu á tæknilega færni, leikskilning og skapandi spilamennsku
- Kynnast gildum FC Barcelona: virðingu, vinnusemi, metnaði og liðsheild
- Þjálfast af reyndum Barca-þjálfurum sem koma sérstaklega til landsins
- Taka þátt í fjölbreyttum og faglega uppbyggðum æfingum
- Fá Nike æfingasett, fótbolta og viðurkenningarskjal
- Njóta öryggis og gæða – sjúkraþjálfari er á öllum æfingum
Aldurshópar og æfingatímar
Námskeiðin eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 8–14 ára, skipulögð eftir fæðingarárum:
- 2014-2015 (5. flokkur): kl. 09:00–11:00 (mætt kl. 08:45)
- 2012–2013 (4. flokkur): kl. 11:30–13:30 (mætt kl. 11:15)
- 2018 (eldra á í 7. flokk): kl. 11:30 -13:30 (mætt kl. 11:15)
- 2016-2017 (6. flokkur): kl. 14:30–16:30 (mætt kl. 14:15)
Dagsetningar og staðsetning
- Æfingadagar: 15.-19. Júní
- Búningaafhending: 14. júní
- Staðsetning: Kópavogsvöllur / æfingasvæði Breiðabliks
Verð og afslættir
- Verð: 52.500kr. (verðið er 44.900 hjá 7. flokki, þar sem námskeiðið er 4 dagar hjá þeim flokki)
- Hægt er að skipta greiðslum á fjóra mánuði
- 10% systkinaafsláttur
Skráning
Skráning fer fram í gegnum Abler:
👉 https://www.abler.io/shop/barcaacademyiceland/1
Vegna mikillar eftirspurnar síðustu ára er mælt með að skrá sem fyrst. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður í hverjum hópi til að tryggja gæði og persónulega leiðsögn.