Barcelona æfingabúðirnar á Íslandi verða stærri en nokkru sinni fyrir, nú þegar hafa yfir 500 leikmenn skráð sig í æfingabúðirnar og uppselt er orðið á tvö námskeið. Hægt var að bæta við aukanámskeið fyrir 9-10 ára aldurshópin en því miður verður ekki hægt að bæta við fleiri hópum.